A.T.H.þessi síða er opinberlega ónýt. ENDILEGA KOMIÐ Á NÝJU=) http://www.blog.central.is/skirmish- MUNIÐ EFTIR - !
08.12.2005 10:56:32 / Tilda

Eitt próf eftir! :/

Jabbs, eitt helvítis próf eftir og það er Stærðfræði djöfull :/ Ég er koooolfallin í því enda mitt slakasta fag, hata stærðfræði meira en allt. En það verður bara að hafa það. ;D

Var í Íslensku prófi núna áðan, gekk mjög vel. Skítlétt alveg.. Kannski Gunnar Þorri verði vinur minn og sjái hvað mér gekk vel og kemur heim með aðra mynd handa mér af sjálfum sér ;> VÚHÚÚ! Æji ég ætla að vona að Guð gefi mér það í jólagjöf að fá góðar einkunnir. Það væri great! Mér finnst ég alla vega búin að standa mig alveg ágætlega, mætti vera minna um þetta kæruleysi í mér en annars fínt. Kvíður fyrir prófinu á morgun, shit :/ Verður Pain in the neck. Vonum það besta.

Annars er allt gott að frétta héðan ;D Siggi frændi að reyna fá mig til Reykjavíkur á Laugard. því honum vantar pössun. Kannski maður skellir sér og verði góða frænkan, en æji ég veit það ekki.. Heheh, eitthvað annað að gera ? Efast stórlega um það.. Svo er Katla okkar komin til Eyja, gaman að hitta hana, alveg sami rugludalurinn. Hahah :* En en en.. Jám, heheh ég er alltaf jafn kjaftstopp þegar ég blogga þannig, OVER AND OUT! ;D
Ps: Það er kominn nýtt dagatal hérna í aðalmyndvalinu, paint-myndir eftir Þóru Sif allir að skoða alveg meeeega flott :* Og Agnes, gangi þér sem allra best í dag. Love you.

» 13 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 18:53:24 / Þóra Sif

Jóladagatal :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 11:42:17 / Tilda

Prófin..

Mjamja.. Próf og aftur próf :/ Byrjaði í gær eins og flestir aðrir þá var Ensku próf, gekk mjög vel, elska Baldvin geðveikt dúllulegt próf hjá honum ;D Bara settningar með nöfnunum okkar.. Hahah hann er krútt :* Ætla að vona að ég nái, þó ég sé öllu undirbúin. Svo var Danska í dag, skítlétt próf.. Bjóst við miklu meira og erfiðara, til dæmis eins og með sögnunum og því "jer, jeres, deres, han, hendes" blabla.. Held samt að ég sé með lélega vetrareinkunn í Dönsku, en það verður bara að hafa það.. sjáum bara til hvernig þetta fer allt saman.. Annars er ekkert próf hjá mér á morgun þannig ég er í fríi og fæ að sofa út! FYLLERÍ STELPUR. Njé, djók.. Alltaf ef að það er frí eða rauður dagur í dagatalinu fer fólk á fyllerí alveg merkilegt =) Heheh, Æjts.. Hef voða lítið að segja skoooo..

Er að spá í að fara í bæinn á Föstud. Amma vill endilega fá mig til þess að ég hvíli mig vel og svo ég geti farið með henni að verlsa jólagjafir og föt á mig. Elska Ömmur, dekra mann í kássu! Það er fínt, þarf eitthver að gera það, ekki það að mamma dekri mig ekkert var að fá veit ekki hvað mikið af fötum í gær.. enda var mamma við stór innkaup í kóngsins Köbenhavn ;D Fjör fjör. Ætla samt bara að sjá til með þessa RVK ferð mína.. En jabbs, ég er hóra.. Vissu það ekki allir ? Er búin að vera R*Ð* á fullu núna bara eitthverjum gaurum, eða alla vega segir fólkið í Vestmannaeyjum það, þau vita það nátturulega betur en ég og allir hinir í kringum mig right ? ;D Hahah, fyndið.. Ég er svo líka ólétt en ég gerði "R" orðið með svo mörgum að ég veit ekki hver er pabbinn! HELL YEAH! ;> Gaman af þessu.. Elska ykkur fólk :*
Benoný takk fyrir afnotið af klósettinu þínu í gær!

Blessó..


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 14:54:17 / Brynja

Jólasveinar og próf

Hæhæ ákvað að henda inn einu örstuttu bloggi hingað inn. Útaf því ég er orðin leið á að liggja yfir bókunum. Var í ensku prófi í morgun og það gekk alveg ágætlega held ég eða vona það:) svo er ég að lesa fyrir dönsku prófið núna8). Svo er maður bara komin í jólafrí 9.des þvílíkur lúxús eitthvað annað en í grunnskólanum liggur við að maður sé búin 23.des þar. Svo býst ég sterklega við því að fara að bera út Jólapóstin til þess að næla sér í eitthvern pening:$

En útí aðra sálma. Lokaballið verður 17.des eða það skylst mér og verða Oxford að spila. Og ættlum við að byrja uppí íbúð hjá Önnu og Orra og hafa mat og bollu og svona fínerí og fara svo á ballið mjög hressar:!:8)  en ég ættla að skora á nokkra einstaklinga til þess að blogga , þau sem hafa verið mjög slöpp í því eru...

  • Anna María , held hún hafi 1x bloggað!
  • Anita , hefur örugglega aldrei bloggað
  • eX-gaui
  • Lella
  • Guðrún heba
  • Agnes

hunskisti til þess að blogga!

hOhOhÓ

En það styttist óðum í jólin og komið fullt af jólaskrauti. ooo það er orðið svo jóló HE.  allir foreldrar að fara yfrum af stressi. ég fatta ekki þetta jóla stress :o á maður ekki alltaf að vera glaður og hress á jólunum, ég meina Jesúss á nú afmæli. óþarfi að stressa sig yfir því:) ne djók . enég ætlaði nú ekki að hafa þetta svona langt þannig veriði sæl og blessuð.!

kv.  Jóla-Brynja


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 22:14:40 / Brynja

nýtt nýtt

Var að henda inn tvem nýjum albúmum..! svona gamlar nýjar myndir.. átti þetta bara í tölvuni og ákvað að henda þessu inn

http://skirmish.myphotoalbum.com

endilega skoðið og commentið eitthvað sniðugt.                      lesiðii líka seinsut tvö blogg hér að neðan.. það er allt nýtt lika

over'n out      -Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 18:09:44 / Laufey

ahh:)

Halló;) langt síðan maður hefur kíkt hingað og loggað sig inn til þess að blogga.. En já allvega það er allt gott að frétta nema það ég kem kannski bara heim á þorláksmessu:/ sem er ekki allveg nógu gott því ég var að vonast til að komast heim um 15:/ en það er vegna ég þarf að vinna 22 desember til 7 og þá missi ég af herjólfi mjög ömurlegt :( En annars byrja prófin hjá mér á Mánudaginn og er þá enska ætti að geta púðra því upp enska er ekki áfangi sem maður á að falla í... en aftur á móti þá eru miklar líkur að ég sé fallin í stærðfræði en það e rlíka eini áfanginn sem ég er fallinn í:) en jáháá gærdagurinn hjá mér fór í það að hömm jáá til Ómars strákarnir voru eitthvað að drekka þar en ég var bara stillt vinna í morgun og próf framundan reyndar líka hjá drengjunum en þeir eru hvort sem er svo kærulausir:) en ég hef ekkert meira að segja en Halli velkomin í borgina;) og Guðrún mín æðislega mikið til hamingju:********* loveyaall haha:******** Agnes múhahh:*

laufey-

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 16:50:50 / Tilda

Bæ Halli :*

Hæhæ, vildi henda einu bloggi til Halla minns.. Halli er fluttur á höfuðborgarsvæðið :/ Fór í morgun, ég asnaðist að kveðja hann eitthverntímann í nótt man ekki alveg hvað klukkan var, greyið Halli sofandi upp í rúmi koma þrjár skessur og vekja hann.. En það var víst allt í gúddí, ég meina síðasta nóttin ;D Vissi ekkert hvar ég var og hvað ég var að gera þannig.. Æjts, svona er þetta. Elsku besti Haraldur Sigfús Magnússon, gangi þér vel í Reykjavíkinni og bara hreinlega öllum sem þú átt eftir að taka þér fyrir hendur :* Þykir alveg ómótstæðilega vænt um þig og þú veist það. Heyri í þér þegar ég kem í bæinn og þegar þú kemur hingað á skerið okkar! Love you.

Já, kvöldið í gær var hið fínasta kvöld.. Ég var með Halla hinum eða Haraldi Ara á Pizza að bíða eftir matnum mínum í svona 3 tíma, var hell að gera.. Enda allir að nýta sér 50% afsláttar take away dæmið þarna.. En það var ágætt, Stói, Garðar, Siggi Prest, Hjölli, bróðir Dj-Steina, Plútó og eitthverjir fleiri héldu uppi stemmaranum þarna og svona þannig.. Þetta var fine shit. Svo fórum við heim til Halla Ara.. Ég, Halli og Víðir, brösuðum eitthvað þar.. Tókum niður jólaskrautið af háaloftinu og tókum til í herberginu hans því hann vildi breyta eða réttara sagt mamma hans ! Án efa fallegasta kona bæjarins. En jæja ok. Svo fórum við aftur niður á pizza og fengum okkur bjór, Halli splæsti :*

Svo skutlaði Hulda mér heim og ég gerði mig ready og Aníta kom til min, við drukkum eitthvað heima og fórum svo með Jenna eitthvert út í bláinn.. Fórum svo heim til hans, fengum okkur bjór og stuff.. Svaka fjör svo fórum við eitthvert og svo eitthvert og svo aftur eitthvert. Hittum svo eitthverja og þeir komu með okkur heim. EKKI MISSKILJA! ;D Hm, svooo sofnuðum ég og Aníta og vitum ekki meira. Hvað gerðuð þið hin? Pleh, veit ekkert hvað ég er að röfla..

Takk fyrir ágætt kvöld.

Vildi bara segja ykkur að Brynja var að henda inn nýjum/gömlum myndum inn á myndasíðuna okkar, FLASHPACK! ;D ;*
http://skirmish.myphotoalbum.com
Enjoy! ;>




» 5 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 11:28:43 / Tilda

Long Time No See! ;D

Hæds, langt síðan ég bloggaði.. Það er svona þegar maður er Busy.. Neinei ég er það ekkert. Síðustu helgi var ég í Reykjavík, þar síðustu helgi líka og þar þar síðustu þannig það er búið að vera mikið flakk á manni.. En ég ætla að vera heima þessa helgina vona að allir séu ánægðir með það, trúi nú ekki öðru. En já, það eru að koma jól! Og síðustu jól eru nýbúin. Shit, fljótt að líða allt saman, finnst ég bókstaflega nýbyrjuð í skólanum.. Jæja það er ágætt, styttist í sumarið aftur 8) Hef alveg afskaplega lítið að segja, langaði bara að henda einu litlu bloggi hérna inn því það eru alltaf þeir sömu sem blogga hérna núorðið og þá sérstaklega Þóra Sif eftir að hún fékk Adsl-ið. Svo er mamma bara í Danmörku, sakna hennar smá.. En það verður gaman að fá hana heim og fá gjafir tala nú ekki um það. Prófin að byrja, PRF! Á eftir að falla í mest megnis öllu held ég :/ Alla vega Stæ og Ísl örugglega, Gunnar Þorri bókstaflega hatar mig og Gunnar hinn er ekki alveg nógu ánægður með mig. Veit ekkert afhverju, en manni getur ekki líkað við alla. Samt skrýtið, Gunnar Þorri gefur mér, BARA MÉR! Mynd af sér sem mömmu fannst hún svo fyndin að hún hengdi hana upp á ísskáp. Ahm, takk fyrir kærlega. Heheh, en svo hótaði hann mér, BARA MÉR! Að hann myndi prumpa á mig, Já.. Þið heyrðuð rétt PRUMPA á mig. Hahah, þvílíkt vinsæll nemandi þar á ferð. Æji svona er þetta ég verð bara að sætta mig við það. Hann vill pottþétt að ég falli svo ég komi til hans aftur á næstu önn. Hlýtur að vera ;) Vona bara að öllum gangi vel í prófunum ;D

Veit ekkert hvað ég ætla að gera um helgina, kannski gera eitthvað funny og skemmtilegt í kvöld en læra á morgun og sunnud. ? Er eitthvað að gerast annars? Njé, held ekki.. En ef þið viljið gera eitthvað þá endilega Call me! Held að Agnes ætli að gista hjá mér yfir helgina, það verður fínt. Sefur maður ekki einn eins og alla hina dagana.. En Jabbs, ætla að hætta þessu röfli, Heyri í ykkur :*
Tilda Milda.
Oj

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 12:43:50 / Þóra Sif

Allar ornar 16 :D Víhúúú....

jæja þá eru þær Brynja og Björg ornar 16 :) og við bökuðum smá köku fyrir þær í gær og héldum svona smá afmæli. Sem var gegjó gaman.... allar vorum við nú nema þær sem búa í rvk og guðrún :( en svoan er þetta bara.. við getum aldrey verið allar :)

hér er þessi yndislega kaka sem ég og lella gerðum :) takk fyrir takk fyrir  oj já eggin þarna eru Brynja og Björg :)

Svo hér er ég og Aníta að kveikja á 32 kertum :) 2 * 16

En allavega er ég búin að setja myndir af þessu æðislega kvöldi inn á myndasíðuna okkar

http://skirmish.myphotoalbum.com/

**Þóra Sif**


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 00:00:11 / Þóra Sif

TiL HaMiNgJu MeÐ aFmÆlIð elskurnar ;**

Víííííí.....Loksins loksins  Er kl.  orðin 00:00 og komin 30 Nóv.... þennan frábæra dag fyrir um 16 árum voðru þær Brynja og Björg að koma í heiminn. En allavega vil ég óska þeim

 T i L   H a M i N g J u M e Ð a F m Æ l I ð :**  

 

 

 



Björg og Brynja à   smá paint frá mér elskurnar ;**

 

Þær eiga afmæli í dag þær eiga afmæli í dag þær eiga afmæli Björg og Brynjaaaa..... lalalala. Ég elska ykkur geggjó og við allar í Skirmish... ;*

 

 :!:.........Húrra.......:!:

 **Ykkar elskulega Þóra Sif **


» 23 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 22:16:49 / Birgit

Goood News :D

Jááá Góðaa kvöldið kæru landsmenn ! 8)

Ég hef lítið sem Ekkert að gera og ákvað að deila hérna gleðifrétt ! ÉG NAÐI BOKLEGA VIJ !!  sko EG :) ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég sá að ég hefði staðist þetta en jeij ;)

Ja svo fór ég bara á æfingu og það var bara fínt .. og kom svo hérna heim og horfði á TV og restina á leiknum sem ég horfði reyndar á ruglaðann :D

Eeeen já ég er farin að gera e-ð funny svo blessó kids :haha:

-Birgit Framtíðarökumaður :D

Ʈ̌

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 00:17:25 / Brynja

Til hamingju með afmælið :*

Þennan merka dag árið 1989 fæddist Agnes Gústafsdóttir.. og er hún orðin 16 ára pæja :*  hún er orðin risa stór og orðin jafn stór og hinar en núna erum við bara eftir sem sagt við ungmennin ég(Brynja) og mín yndislega systir Björg..  en bara

Til hamingju með afmælið sætabrauð :*:*:*

Hér er Björg og Afæmlisbarnið Agnes

*HIPP HIPP* *HÚRRA*

-Brynja-:!:


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 22:21:57 / Þóra Sif

Jóla hvað...

Vá... ok  ég er komin  í smá jóla * stuððð *  bara 34 dagar í þá:!:  hehe en ég meina 34 dagar :haha: hvessu mikil Snilld

**Jóla Þóra **


» 15 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 10:30:56 / Þóra Sif

hjellú :) Myndir frá því í gær

jæja hæjjj... okeim í gær var brjálllll... veður vá og það var farið alla leið upp í 'ASHAMRA:!::!: takk fyrrir. Til Guðrúnar Hebu og svo var kíkt smá til Luisu en það var nú ekki leingi.Löggan komin og allt æðislegt :) en já eins og ég er þá er ég ávalt með mína elsku Myndavél og tók nokkrar myndir :klikk: endilega skoðið þær :)

En allavega þá er ég að fara keppa núna kl 13:00  :) samt er marr að deyja í the löppus hehe en hvað með það :) sía thennnnn... :!:

Myndir síðan í gær :) http://skirmish.myphotoalbum.com/   

>*Þóra Sif*<


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 14:28:50 / Björg

?

Stelpur eruð þið að grínast, getum við ekki haldipð vinskap fyrir utan skirmish ég er eithvað að túlka það á þessum commentum hjá brynju og þóru sif og slúðrinu.

Mer er drulllu sama hvort við hættum með þessa síðu eða hvað þið verðið samt alltaf ennþá bestu vinko´nur mínar!

Skirmish er ekki líf mitt og yndi einsog kannski sumra ykkar. Heldur þið stelpur.


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12